Aníta Briem
Aníta hóf feril sinn 9 ára gömul í Þjóðleikhúsinu, þar sem hún lék mest alla sína barnæsku (Emil í Kattholti, Kardemommubærinn, Fiðlarinn á Þakinu, Óskastjarnan). Hún flutti svo til London 16 ára til að sækja leiklistarmenntun og útskrifaðist úr The Royal Academy of Dramatic Arts með BA gráðu í leiklist.
Eftir nám vann hún í leikhúsi, m.a. með Mike Figgis að tveggja manna sýningunni A Catalogue of Misunderstandings í The London National Theatre og í svörtu kómedíunni Losing Louis sem var flutt á West End. Næst lá leið hennar til Ameríku þegar hún var ráðin til að leika á móti Martin Landau í sjónvarpsseríunni The Evidence fyrir ABC.
Önnur helstu kvikmynda- og sjónvarpshlutverk eru m.a. Hanna í Journey to the Center of the Earth (Warner Bros/New Line Cinema), Jane Seymour í The Tudors (Showtime), Sally í Doctor Who, Elizabeth í Dylan Dog (Hyde Park Films) sem og mest nýlega Steinunn í Ráðherranum (SagaFilm/RÚV) sem var tilnefnt til bæði Prix Europa og Venice TV verðlaunanna.
Árið 2021 lék hún í 3 kvikmyndum, Skjálfti/Quake leikstýrð af Tinnu Hrafnsdóttur, Svar við Bréfi Helgu leikstýrð af Ásu Helgu Hjörleifsdóttur og Berdeymi/Chicken Boy leikstýrð af Guðmundi Arnari Guðmundssyni.