Arndís Hrönn Egilsdóttir
Arndís Hrönn lærði leiklist og leikhúsfræði í París. Hún hefur starfað sem leikkona á sviði, í sjónvarpi, kvikmyndum og útvarpi og er ein af forsvarsmanneskjum leikhópsins Sokkabandið.
Arndís lék nýverið í Eldarnir, kvikmynd sem Ugla Hauksdóttir leikstýrði. Einnig leikur hún stórt hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni Flóðið sem Þórður Pálsson leikstýrir og verður frumsýnd 2026. Hún lék aðalhlutverkið í mynd Gríms Hákonarsonar Héraðið. Hún lék einnig í sjónvarpsþáttaröðunum Brot, Föngum og Pressu. Einnig mætti nefna kvikmyndirnar Þresti eftir Rúnar Rúnarsson, Ölmu eftir Kristínu Jóhannsdóttur og Síðasta Saumaklúbbinn í leikstjórn Göggu Jónsdóttur en þar lék hún eitt af aðalhlutverkunum.
Meðal sýninga sem Arndís hefur leikið í má nefna Framúrskarandi vinkonu eftir Elenu Ferrante, Samþykki eftir Ninu Raine og Engilinn sem var byggð á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar í Þjóðleikhúsinu. Lóaboratoríum eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur, Bláskjá eftir Tyrfing Tyrfingsson, Dúkkuheimilið eftir Henrik Ibsen og Hystory eftir Kristínu Eiríksdóttur í Borgarleikhúsinu. Í Hafnarfjarðarleikhúsinu lék hún m.a. í Gunnlaðarsögu og Mindcamp.
Arndís fékkst við dagskrárgerð fyrir Ríkisútvarpið Rás 1 um árabil. Hún var meðal annars umsjónarmaður Víðsjár og hefur gert fjölmarga menningarþætti.
Arndís var tilnefnd til Grímunnar fyrir leik sinn í Englinum, Hystory og Gunnlaðarsögu. Hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir leik sinn í Héraðinu en var áður tilnefnd fyrir leik sinni í sjónvarpsþáttaröðinni Pressu og kvikmyndinni Þröstum.