)
Birna Pétursdóttir
Birna Pétursdóttir lauk BA námi í leiklist frá Rose Bruford College í London 2012 en hefur frá útskrift leikið hjá Leikfélagi Akureyrar, í Þjóðleikhúsi og Borgarleikhúsinu þar sem hún starfar í dag.
Birna hlaut Grímuverðlaun sem leikkona ársins í aðalhlutverki árið 2025 fyrir túlkun sína á Íseyju í Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu. Árið 2021 hlaut Birna Grímuverðlaun sem leikkona ársins í aukahlutverki fyrir leik sinn í söngleiknum Benedikt Búálfur í uppsetningu Leikfélags Akureyrar.
Árið 2017 stofnaði Birna ásamt fleirum leikhópinn Umskiptinga sem hlaut tilnefningu til Sprota Ársins 2018 fyrir frumsamið verk sitt Framhjá rauða húsinu og niður stigann. Ári síðar hlutu Umskiptingar aftur tilnefningu til Grímunnar í flokki Barnasýninga ársins fyrir Galdragáttina, sem Birna skrifaði ásamt hópnum.
Birna hefur mikla reynslu af dagskrárgerð og framleiðslu sjónvarpsefnis en Birna var einn umsjónarmanna Landans á RÚV 2017-2018 og leikstýrði og framleiddi heimildaþáttaröðina Í góðri trú sem sýnd var á RÚV 2020. Árið 2022 skrifaði Birna Krakkaskaupið fyrir RÚV ásamt Árna Beinteini Árnasyni.
Birna er jafnframt einn þriggja höfunda gamanverksins Fullorðin sem sló í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar og í Þjóðleikhúskjallaranum, en verkið var sýnt yfir 60 sinnum.
Birna hefur leikið í nokkrum sjónvarpsþáttum, nýjast er sjónvarpsserían Brjánn, auk Áramótaskaupsins.
Birna hefur mikla reynslu af lestri hljóðbóka og hefur auk þess leikið í og lesið inn á fjölmargar auglýsingar af ýmsu tagi.
)
)
)
)
)
)