is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Edda Björgvinsdóttir

IMDB

Edda Björgvins er leikkona og fyrirlesari með meiru og er fastráðin leikkona við Þjóðleikhúsið. Áður en hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands nam hún heimspeki við HÍ. Hún er með MA í Menningarstjórnun og með diplómu í Jákvæðri sálfræði frá Háskóla Íslands. Edda hefur leikið í ógrynni bíómynda og leikrita í gegnum tíðina ásamt því að hafa starfað sem höfundur og leikstjóri.

Edda Björgvinsdóttir fékk Edduna 2018 fyrir “Besta leik í aðalhlutverki” í kvikmyndinni Undir Trénu og var valin “Besta leikkona í aðalhlutverki” af Cinema Scandinavia árið 2017. Hún var tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir leik sinn í kvikmyndinni Stella í framboði og síðar einnig tilnefnd til sömu verðlauna fyrir sjónvarpsþættina Eddan – engri lík.

Í Screen Daily fékk Edda þessa umsögn eftir frumsýningu Undir Trénu í Feneyjum 2017: „Mynd­in er aft­ur á móti eign E. Björg­vins­dótt­ur sem stel­ur sen­unni. Hún spýt­ir út úr sér blóts­yrðum og sýn­ir heift­ina af slíku afli og ör­yggi að per­són­an henn­ar kemst sam­stund­is á lista yfir minn­is­stæðar ætt­mæður hvíta tjalds­ins.“

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080