Guðrún Eyfjörð
Guðrún Eyfjörð er fædd í Reykjavík 1996. Hún hefur getið sér nafns sem tónlistarkonan GDRN og notið gríðarlegra vinsælda fyrir tónsmíð og framkomu. Guðrún hefur lagt nám á hin ýmsu hljóðfæri, bæði rytmísk eða klassísk, en þar má nefna klassískan fiðluleik, jazzsöng, píanó- og gítarleik í um áratug. Hún hefur á stuttum tónlistarferli unnið til fjölmargra verðlauna, t.d. sem “Söngkona ársins,” “Lag ársins,” “Plata ársins” og “Tónlistarmyndband ársins.”
Nýverið hefur Guðrún fært sig enn meira inn á svið leiklistarinnar en hefur þrátt fyrir ungan aldur komið fram sem listamaður í um tuttugu ár. Guðrún leikur eitt af aðalhlutverkum í Netflix Original þáttaröðinni Kötlu undir leikstjórn Baltasars Kormáks sem kom út árið 2021.
)
)