is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Jakob Van Oosterhout

Instagram

Jakob van Oosterhout (1997) er íslenskur/hollenskur leikari sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands með BA gráðu í leiklist vorið 2024. Nýlega fór hann með hlutverk í kvikmyndunum Greenland: Migration og Ljósbrot sem og sjónvarpsþáttunum The Darkness og Felix og Klara. Hann fer með hlutverk í söngleiknum Stormur í Þjóðleikhúsinu sem skrifaður er af Unni Ösp Stefánsdóttur og Unu Torfa, en hann var frumsýndur í mars 2025.

Jakob er með burtfararpróf í trompetleik og hefur þar að auki mikla söngreynslu. Hann er með bakgrunn í fimleikum og dansi og hefur lokið BADC (British Academy of Dramatic Combat) foundation-námskeiði í bardagatækni.

Auk sviðs- og kvikmyndaverkefna hefur Jakob unnið töluvert við hljóðbókalestur sem og talsetningar.

Jakob er altalandi á íslensku, hollensku, ensku og dönsku.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080