)
Kolbeinn Arnbjörnsson
Kolbeinn Arnbjörnsson útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2012. Kolbeinn er Ólafsfirðingur sem flutti eftir myndlistarnám til Reykjavíkur þar sem hann smitaðist af leiklistarbakteríunni í gegnum Stúdentaleikhúsið.
Eftir útskrift hefur Kolbeinn unnið jöfnum höndum í kvikmyndum, þáttaröðum, útvarpi, handritaskrifum og í sjálfstæðu leikhússenunni þar sem hann hefur starfað sem leikari og höfundur. Hlaut hann þar tilnefningar og verðlaun fyrir verk á borð við Frama, Petru, Þúsund ára þögn og SOL. Af leik í sjónvarpi og kvikmyndum má nefna þáttaraðirnar Reykjavík 112, Svörtu Sandar, Kanarí, Stella Blomkvist, Réttur 3 og Hraunið ásamt kvikmyndum á borð við Shadow Town, Andið eðlilega og Autumn Lights.
Þar að auki hefur Kolbeinn ljáð röddu sinni hinum ýmsu persónum í teiknimyndum og tölvuleik ásamt því að hafa lesið ótal skáldsögur á hljóðbókarformi og verið rödd fjölmargra stórfyrirtækja í gegnum tíðina á borð við TM, Kringluna, Coca-Cola, Prins Polo, Joe and the Juice, Saltverk og Cintamani.
)
)
)
)
)
)