is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Kristín Pétursdóttir

IMDB

Kristín er fædd árið 1992 og býr í Reykjavík ásamt fjölskyldu sinni. Hennar fyrsta verkefni sem leikkona var hlutverk í myndinni Óróa (2010) og hafði þá leikið í ýmsum verkum í menntaskóla og hjá áhugaleikfélögum.

Kristín útskrifaðist af leikarabraut frá Listaháskóla Íslands árið 2015. Á meðan á náminu stóð lék hún aðalhlutverk í þáttunum Fólkinu í blokkinni fyrir RÚV (2013) og í Áramótaskaupinu árið eftir. Hún hefur þar að auki verið rödd Coca Cola á Íslandi síðan árið 2016 og leikið í ýmsum auglýsingum. Hennar síðasta verkefni var danska leikritið Mæður sem sýnt var í Iðnó og hlaut einróma lof gagnrýnenda.

Kristín heldur auk þess úti stórum samfélagsmiðlareikningi á Instagram þar sem hún er með tæpa 21 þúsund fylgjendur og hefur nýtt sér það sem starfsvettvang, bæði í gríni og auglýsingum.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080