is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Ólafur Ásgeirsson

IMDB
Showreel

Ólafur Ásgeirsson (1990) útskrifaðist af Leikarabraut Sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands árið 2015 og fluttist í kjölfarið til New York þar sem hann lærði Michael Chekhov leiklistartækni í The Michael Chekhov Acting Studio og spunatækni við UCB spunaskólann. Ólafur hefur leikið í kvikmyndunum Órói (2010) og Taka 5 (2019), auk þess sem hann hefur leikið í fjölda þáttasería, stuttmynda og auglýsinga. Ólafur er einn stofnenda Leikfélagsins PóliS sem gerir leikhús á pólsku fyrir pólska áhorfendur á Íslandi. Leikfélagið PóliS vann til Grímuverðlauna sem “Sproti ársins” fyrir sýninguna Co za poroniony pomysł (2021) sem sýnd var í Tjarnarbíó, en Ólafur lærði pólsku fyrir þá sýningu og var einnig tilnefndur til Grímunnar sem “Leikari ársins í aðalhlutverki” fyrir leik sinn. Ólafur lék þá einnig í The Last Kvöldmáltíð (2021) í Tjarnarbíó sem tilnefnd var til fernra Gímuverðlauna. Ólafur skrifaði handrit að leikritinu og fór með hlutverk í Tu jest za drogo sýnt var í Borgarleikhúsinu leikárið 2021/22. Ólafur er starfandi leiklistarkennari á öllum skólastigum og hefur sýnt vikulegar spunasýningar í Þjóðleikhúskjallaranum með Improv Ísland frá árinu 2016.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080