)
Saga Garðarsdóttir
Saga Garðarsdóttir útskrifaðist frá Leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2012. Þá um haustið hóf hún störf hjá Þjóðleikhúsinu og var þar fram til ársins 2014 og lék meðal annars í uppsetningu Benedict Andrews á Macbeth, Englum Alheimsins í leikstjórn Þorleifs Arnars og í Dýrunum í Hálsaskógi í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Þá skrifaði hún m.a. leikritið Kenneth Mána fyrir Borgarleikhúsið, Þetta er grín án djóks fyrir Menningarfélag Akureyrar og Veislu sem var sýnd í Borgarleikhúsinu 2021-2022.
Saga hefur einnig leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttunum, síðast Aftureldingu og Randalín og Mundi – dagar í desember sem hún skrifaði líka. Saga var í handritsteymi Áramótaskaupsins 2022 og 2017 sem hlutu bæði Edduverðlaun fyrir “Gamanefni ársins.”
Hún kemur reglulega fram sem uppistandari og með spunahópnum Improv Ísland sem hefur verið með reglulegar sýningar í Þjóðleikhúskjallaranum frá haustinu 2015.
)
)
)
)
)
)