)
Sigurbjartur Sturla Atlason
Sigurbjartur Sturla Atlason útskrifaðist af Leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2016.
Sigurbjartur hefur leikið í íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsseríum, m.a. Ófærð 2 og Lof mér að falla. Hann hefur leikið í þremur uppfærslum Íslensku óperunnar á undanförnum árum og söng aríu í Toscu í Eldborg.
Í Þjóðleikhúsinu hefur hann m.a. leikið í Rómeó og Júlíu, Framúrskarandi vinkonu, Sem á himni og í Draumaþjófnum. Hann var jafnframt einn af höfundum tónlistar í Rómeó og Júlíu. Á leikárinu 2024-2025 leikur hann í verkunum Stormi og Frosti.
Sigurbjartur leikstýrði Gíslasögu Súrssonar og Rómeó og Júlíu fyrir Herranótt. Hann leikstýrði einnig net- og sjónvarpsseríum fyrir Stöð 2 og vefmiðilinn 101.live.
Sigurbjartur hefur einnig getið sér gott orð í tónlistarbransanum undir listamannsnafninu Sturla Atlas, gefið út fjölda platna og tónlistarmyndbanda og spilað á stórum tónlistarviðburðum. Árið 2016 var hann útnefndur “Bjartasta vonin” á Íslensku tónlistarverðlaununum. Sturla Atlas hefur komið fram víðsvegar á tónlistarhátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum.
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)