)
Tómas Lemarquis
Tómas Lemarquis stundaði fyrst leiklistarnám í París við skólann Cours Florent. Eftir það hélt hann aftur til Íslands þar sem hann læri myndlist í Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2003. Á meðan myndlistarnáminu stóð bauðst honum titilhlutverkið í myndinni Nói Albinói. Sú mynd hlaut fjölda alþjóðlegra verðlauna. Tómas var í kjölfarið tilnefdur til Evrópsku kvikmyndaverðlaunana og hlaut Edduverðlaunin á Íslandi. Ári síðar var hann svo tilnefndur sem “Shooting Star” fyrir Íslands hönd hjá European Film Promotion.
Síðan hefur Tómas leikið í ýmsum evrópskum kvikmyndum og sjónvarpi sem og landað hlutverkum í stórum alþjóðlegum kvikmyndum eins og Snowpiercer, 3 days to Kill, X-Men Appocalypse og Bladerunner 2049. Einnig fór hann með eitt aðalhlutverkið í myndinni Touch Me Not sem hlaut Gullbjörninn á Berlinale hátíðinni 2018.
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)