is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Vignir Rafn Valþórsson

IMDB
Website
Showreel

Vignir Rafn Valþórsson er fæddur 1978 í Lundi í Svíþjóð en fluttist ungur í Kópavoginn þar sem hann sleit barnsskónum og varð að manni (þannig lagað). Vignir Rafn útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2007 og starfaði töluvert í Þjóðleikhúsinu fyrstu árin og lék þar í 9 sýningum, þ.a.m. Frida… viva la vida, Sumarljós, Sá Ljóti, Gott Kvöld og Kardemommubærinn. Vignir Rafn stofnaði leikhópinn Óskabörn ógæfunnar við annan mann árið 2012 og hefur leikstýrt öllum uppfærslum hópsins síðan þá. Á meðal verka Óskabarnanna má telja Rocky!, Hans Blær, Illska og Bláskjár, en fyrir tvö síðastnefndu verkin var Vignir tilnefndur sem “Leikstjóri ársins” á Grímuverðlaununum. Alls hefur Vignir Rafn leikstýrt 16 sýningum í atvinnuleikhúsi hjá sjálfstæðum hópum, Leikfélagi Akureyrar og Borgarleikhúsinu. Samhliða leikstjórnarverkefnum hefur Vignir leikið í sjónvarpi og kvikmyndum, má þar nefna Ófærð 2, Svartur á leik, Næturvaktin, Ríkið, Hlemmavideó og Ligeglad, en Vignir var einn af höfundum þess síðastnefnda og hlaut Ligeglad Edduverðlaunin sem “Sjónvarpsþáttur ársins” árið 2017.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080