)
Birta Sólveig Söring Þórisdóttir
Birta Sólveig Söring er leikkona á hraðri uppleið sem útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2024.
Í augnablikinu heillar Birta áhorfendur sem Lína Langsokkur í Þjóðleikhúsinu en Birta hefur m.a. fengið grímutilnefningu sem leikkona ársins fyrir hlutverk sitt sem Auður í Litlu Hryllingsbúðinni hjá Leikfélagi Akureyrar. Hún hefur einnig birst sem Tinna í söngleiknum Stormur og í sýningunum Frost og Yermu.
Margt er á döfinni hjá Birtu en hún mun birtast í þáttunum Cyperpunk, sem sýndir verða á Netflix, auk þáttanna Tuttugu og eitthvað, sem sýndir verða á RÚV í vetur. Hún leikur einnig hlutverk í kvikmyndinni Polyorama, sem er enn í vinnslu en áður hefur Birta m.a. sést í Áramótaskaupinu og í þáttunum Felix og Klara á RÚV.
Birta mun leika Hallfreði Vandræðaskáld í söngleiknum Ormstunga í Þjóðleikhúsinu í vetur.
)
)
)
)
)
)
)
)