is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Hildur Vala Baldursdóttir

IMDB

Hildur Vala Baldursdóttir útskrifaðist frá leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2019 og hefur síðan þá verið áberandi bæði í leikhúsi og sjónvarpi.

Eftir útskrift úr Listaháskólanum hóf Hildur Vala störf við Þjóðleikhúsið, þar sem hún tók við titilhlutverki Ronju ræningjadóttur. Hildur Vala hefur tekið þátt í fjölmörgum sýningum við Þjóðleikhúsið en meðal annars fór hún með aðalhlutverk Elsu í söngleiknum Frost. Fyrir framúrskarandi frammistöðu sína var hún tilnefnd til Grímuverðlauna sem “Söngvari ársins” 2024 og einnig sem “Söngkona ársins” á Sögum – verðlaunahátíð barnanna.

Hildur Vala hefur tekið þátt í fjölmörgum vinsælum sýningum, þar á meðal Kardemommubænum, Nashyrningunum, Ör, Meistaranum og Margarítu, Atómstöðinni – endurliti, Útsendingu, Múttu Courage, Sem á himni, Stormi og Eltum Veðrið. Í Eltum veðrið kom Hildur einnig að handrita- og leikgerð ásamt þeim hópi sem stóð að sýningunni.

Samhliða leiklistinni hefur Hildur Vala unnið sem söngkona og raddlesari. Hún var rödd Icelandair frá 2019 til 2022 og hefur lesið inn á auglýsingar og unnið við hljóðbókalestur.

Hildur Vala hefur einnig komið fram á skjánum í ýmsum verkefnum. Hún lék í Venjulegu fólki (seríu 2 og 3), Aftureldingu, Stellu Blómkvist, Kötlu og var einnig í stuttmyndinni Skeljar. Þá hefur hún komið fram í Áramótaskaupinu og söng opnunaratriði þess árið 2023. Hún hefur einnig leikið í auglýsingum fyrir ýmis þekkt innlend og erlend fyrirtæki.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080