is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Níels Thibaud Girerd

IMDB

Níels Thibaud Girerd (1993) er leikari og sviðslistamaður sem lauk BA gráðu frá Leikarabraut Sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands árið 2021. Fyrir það hafði hann tekið þátt í allskonar leik- og sviðslistatengdum verkefnum auk dagskrárgerðar og framleiðslu. Níels starfaði hjá Morgunblaðinu og 365 miðlum frá árunum 2010-2015 og kom að yfir 100 þáttum fyrir vef og sjónvarp. Á árunum 2020-2021 framleiddi og leikstýrði Níels þáttunum Óperuminning sem var samstarfsverkefni Íslensku óperunnar og RÚV í tilefni 40 ára afmælis Íslensku óperunnar.

Á árunum 2015-2017 starfaði Níels sem sýningarstjóri og aðstoðarleikstjóri við Íslensku óperuna, þar kom hann meðal annars að sýningunum á borð við Mannsröddin, Évgení Ónegin sem tilnefnd var til Grímunnar sem “Sýning ársins” 2017, Toscu og Brothers. Auk þess hefur Níels leikstýrt óperunum Rabbi Rafmagnsheili eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Örlagaþráðum fyrir Íslensku óperuna. Meðal annarra leikstjórnarverkefna Níelsar má nefna helst söngleikinn Syngjandi í Rigningunni sem sýndur var í Víðistaðaskóla árið 2023.

Frá útskrift við Listaháskólann hefur Níels leikið með Ásthildi Úu Sigurðardóttur í Stundinni Okkar fyrir Ríkissjónvarpið en það sjónvarpsefni var tilnefnt í flokki “Barna- og unglingaefnis ársins” á Eddunni 2022.

MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080