Steiney Skúladóttir
Steiney er menntuð spunaleikkona frá Upright Citizens Brigade og Groundlings skólunum í Los Angeles. Hún hefur getið sér gott orð sem sjónvarpskona, hlaut Edduverðlaunin fyrir þættina Framapot og tilnefningu sem “Sjónvarpsmaður ársins” fyrir þættina Heilabrot. Steiney hefur verið með annan fótinn í leiklistinni síðan hún var 6 ára gömul; leikið í bíómyndum, sjónvarpsþáttum, auglýsingum og á sviði. Hún er hluti af grínhópnum Kanarí sem skrifar og leikur sketsa fyrir sjónvarp og leiksvið og var hluti af Hraðfréttum í tvö ár. Steiney heldur úti sumarþættinum Hljóðvegur 1 á Rás 2 ásamt Jóhanni Alfreð Kristinssyni. Hún er einnig hluti af í rappsveitinni Reykjavíkurdætur sem hefur vakið athygli á Íslandi og víða um Evrópu.
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)