is
en
  • Listafólk
  • Raddir
  • Skemmtanir
  • Fyrirlesarar
  • Um okkur
is
en
Til baka

Andri Ívars

Andri Ívars er grínisti og gítarsnillingur og hefur starfað sem slíkur í tæpan áratug. Andri er þekktur fyrir að blanda tilþrifamiklum gítarleik inn í uppistandsrútínu sína sem skapar honum nokkuð afgerandi sérstöðu á Íslandi. Andri var um árabil meðlimur dúettsins Föstudagslögin með Stefáni Jakobssyni söngvara þungarokkshljómsvetarinnar Dimmu ,en dúettinn flutti grín í bland við “akústískar” útsetningar af þekktum lögum. Auk þess hefur Andri komið fram með uppistandshópnum Mið-Íslandi og sem upphitunaratriði fyrir Ara Eldjárn svo eitthvað sé nefnt. 

Uppistand

Uppistandsatriði Andra er 15-20 mínútna þéttur bræðingur af hans besta gríni. Um er að ræða stutt grínlög og tónlistartengda brandara í bland við hefðbundið uppistand.

Veislustjórn

Andri er reynslumikill veislustjóri og dýnamískur eftir því. Sem veislustjóri blandar Andri saman uppistandi, tónlist og samkvæmisleikjum sem henta hverju tilefni fyrir sig.

Jólafínir/Árshátíðarfínir

Andri er meðlimur í stemmningsbandinu Jólafínir/Árshátíðarfínir sem tekur að sér að koma við í jólapartýinu, á árshátíðinni eða við önnur skemmtileg tilefni og það hleður í live karíókí eða live jólakaríókí fyrir hópinn.

Lifandi tónlist yfir kvöldverði

Andri tekur að sér að spila lifandi tónlist yfir kvöldverði, til dæmis á árshátíðum og veislum. Góð viðbót við veislustjórn.

Pub quiz

Andri mætir með pub quiz fyrir hópa, sérsniðna eftir þörfum. Hann vinnur helst með tónlistarquiz þar sem hann spilar lagabút á gítar og fólk giskar á lagið.


MÓÐURSKIPIÐ
  • Um Móðurskipið
Listafólk
Raddir
Skemmtanir
Fyrirlesarar
Um okkur

Móðurskipið Umboðsstofa
modurskipid@modurskipid.is
+354 454 8080