Björk Guðmundsdóttir
Veislustjórn:
Björk hefur mikla reynslu af því að stýra skemmtunum og veislum fyrir mismunandi aldurshópa og vinnustaði. Hún á auðvelt með að ná til allra, er með einlæga en jafnframt fyndna orku sem fær alla í veislunni/skemmtuninni til að njóta, hlæja og eiga frábæra kvöldstund. Björk er fjölhæf og getur því sniðið skemmtiatriðin að veislunni. Hún getur meðal annars samið grínlög á staðnum eða verið með uppistand. Björk hefur meðal annars verið kynnir á Lúðrinum, íslensku auglýsingaverðlaununum 2021.
„Hún er svo drulluskemmtileg og fyndin þessi, væri til í að bóka hana til að veislustýra lífi mínu. Ekkert hópefli, bara einefli“ – Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir, uppistandari
„Langaði bara til þess að deila því hér að ég fékk Björk til þess að vera veislustjóri í afmælis/útskriftaveislu hjá mér fyrir skömmu. Sé sko ekki eftir því. Hún stýrði þessu af fagmennsku, var vel undirbúin og fáránlega skemmtileg. Náði mjög svo blönduðum sal á sitt band. Hún fær því mín allra bestu meðmæli eftir þessa reynslu. Bara snillingur þessi stelpa og mæli hiklaust með að þið veljið hana ef ykkur vantar einhvern til þess að stýra eða poppa upp veisluna ykkar. Þúsund þakkir fyrir mig“ – Þórdís Ólöf Viðarsdóttir, nýútskrifaður lögfræðingur
„Björk tók að sér veislustjórn á árshátíð Ljóssins í október og það er óhætt að segja að hún hafi slegið í gegn. Hún mætti galvösk til leiks, var fljót að lesa hópinn og úr varð skemmtun sem fékk fólk til að veltast um af hlátri og taka virkan þátt í kvöldinu. Veislustjórnunin var vel undirbúin og ég held að reynsla hennar af spuna skili sér mjög vel í hlutverk veislustjórans og leyfi henni að tækla ófyrirsjáanleg augnablik á skemmtilega vegu. Það sem kom mér mest á óvart er hvað hún getur sungið en tónlistaratriðin sem hún skellti í samhliða öðru sprelli voru á heimsmælikvarða. Mæli heilshugar með Björk ef þú ert að leita að einhverjum til þess að stýra þínum viðburði“ – Sólveig Kolbrún Pálssdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Ljóssins
„Hef verið í veislu þar sem hún var veislustjóri og hló svo mikið að mig verkjaði í kinnarnar“ – Sigurður Viðarson
Hópefli:
Styrktu teymisanda, gleði og árangur
„Ég hjálpa fólki að stíga út fyrir þægindaramman og efla hugrekki í gegnum hlátur, leik og með æfingum sem byggja á teymisvinnu og hlustun.“
Hópeflið er sérhannað fyrir vinnustaði sem vilja efla samheldni, sjálfstraust og vellíðan starfsfólks. Björk Guðmundsdóttir leiðir hópinn með spunaæfingum, með áherslu á leikgleði, þar sem allir fá að skína á eigin forsendum. Þetta er upplifun sem umbreytir teymum: starfsfólk tengist betur, hlær saman og kemur út með nýja orku og skýrari fókus.
Lykilpunktar hópeflis:
Leikgleði sem leiðtogafærni
Eykur framleiðni, einbeitingu og sveigjanleika
Auðveldar teymisvinnu og samheldni í hópnum
Byggir upp jákvæða menningu þar sem fólk finnur fyrir tilgangi og sjálfstrausti
Tjáning, traust og trú á eigin rödd
Streitulosun í gegnum húmor
Skapandi hugsun í aðgerðum
Björk Guðmundsdóttir er leikkona, handritshöfundur og skemmtikraftur með fjölbreytta reynslu á sviði og sjónvarpi. Hún er virkur meðlimur Improv Íslands, hefur lært spunaleik í Upright Citizens Brigade í New York og LA sem er hennar aðalverkfæri í hópeflinu. Björk hefur einnig B.A. gráðu í leiklist frá Listaháskóla Íslands og B.S. í sálfræði frá Háskóla Íslands.
Þessi bakgrunnur tryggir að hópeflið er faglegt, árangursríkt og skemmtilegt – starfsfólk styrkir samskipti, hlustun og samvinnu, losar stress og yfirgefur hópeflið með sem sterkara teymi.
„Björk stjórnaði hópefli á mínum vinnustað og gerði það full af gleði og jákvæðni. Hún nær auðveldlega til fólks og mætir vel undirbúin til leiks. Þetta var mjög ólíkur hópur en hún náði að fá alla til að skína á eigin forsendum. Mæli hiklaust með Björk“ – Unnar Geir Unnarsson, starfsmaður hjá Menningar- og frístundarsviði Reykjavíkurborgar
)
)